29.10.2007 13:53:13 / magga

Nýtt blogg

Þú verður færð/ur á nýja bloggsíðu innan skamms. 

Ef það virkar ekki smellið þá hér til að fara á nýju síðuna.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.08.2007 00:58:56 / magga

Farin í orlof..

***

Verslunarmannahelgin er víst byrjuð en verður svolítið öðruvísi í ár..
Engin þjóðhátíð eða útihátíð yfir höfuð.. ætlum nú samt að kíkja í smá útilegu í fyrramálið og veiða..

Ástæðan fyrir því að við gerum ekki mikið spennandi þessa helgi er sú að á mánudagsmorguninn þegar allir eru að skríða upp í tjöld þá erum við á leiðinni til Boston ;)

Ég er bara orðin svolítið spennt, það verður yndigott að komast í smá frí og afslöppun..

Hlakka svo til að komast í þessar...

***

***

***

***

Ég ætla ekki að sitja auðum höndum, verð alveg örugglega dugleg í búðunum enda var ég að klára að taka fataskápinn minn í gegn. Tók allt sem ég hef ekki notað lengi frá svo það verði nú pláss fyrir nýju fötin mín :)

En jæja, langaði bara að sýna smá líf hérna..

Ætla að klára að taka til hérna!

-Magga-

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 23:55:15 / magga

Summerlove

***

Helgin er búin að vera

Yndisleg

- Sól - Hiti - Grill - Ís - Sól -

...og kannski smá sólbruni! 

 Njótið rjómablíðunnar á meðan hún er :)

 

 *Aðeins 21 dagur í US of A*

 -Magga-


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 21:28:55 / magga

Update..

***

Kannski kominn tími á eitt stykki færslu?

Margt búið að gera síðan síðast, skelltum okkur til dæmis á Írska daga um síðustu helgi sem var mjög skemmtilegt þrátt fyrir að vera aðeins í eldri kantinum en það var annars bara fínt. Ætli þetta verði ekki eina útihátíðin í sumar þar sem ég reikna fastlega með því að fara ekki til Eyja þetta árið.

Ég held að Ísland sé búið að færast eitthvað til á hnettinum því það er bara alltaf gott veður, alveg ferlegt að vera að vinna skrifstofuvinnu í svona veðri, annars styttist í sumarfríið mitt, en ég ætla að taka heilar tvær vikur í frí í ágúst. Við skötuhjúin erum að plana ferð ársins, það verður nú heldur betur kærkomið en við stefnum á USA. Ég varð ástfangin af ameríkunni í fyrra þannig það kemur eiginlega ekkert annað til greina en að fara þangað :)

Stefnan tekin á Hveragerði city á morgun og kíkja á stelpurnar, Gestný ætlar að halda smá hitting fyrir okkur í Glamour. Langt síðan ég hitti þær allar svo það verður nú aldeilis fínt.

En jæja, ég nenni ekki að skrifa meira, lofa að vera duglegri við að skrifa hérna...

-Magga- 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 14:31:45 / magga

070607

***

Í gær um kvöldmatarleytið fékk ég símhringingu frá mömmu sem var að láta mig vita að frændi minn og konan hans Guðrún voru að eignast litlu prinsessuna sem allir eru búnir að bíða eftir með þvílíkri eftirvæntingu!

Við fórum auðvitað beinustu leið upp á spítala til þess að kíkja á krílið - þvílíkt krútt sem hún var, aðeins tveggja tíma gömul og alveg slétt og flott!

...og það sem meira er, að ég fékk líka nöfnu! Hún var nefnd um leið og hún fæddist og heitir Valdís Anna, finnst það bara krúttlegt nafn.

Núna er ég að sjálfsögðu stolta frænkan - en ekki hvað ;)

 

*Bara sæt*

Það sem meira er í frétttum er að í gær fékk Daði inn í HR, ég er líka voðalega stolt af honum, flott hjá stráknum :)

...reyndar þýðir það skólagjöld dauðans - en það hlýtur að koma allt til baka svona seinna meir ;)

Helgin er bara rétt að koma, bara einn og hálfur klukkutími í frí, vona að það verði jafnt gott veður og var í morgun.
Ætlum að hafa smá grillpartý á morgun þannig það er eins gott!

En ætla að halda áfram að vinna..

-Magga-


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 19:37:38 / magga

Sumarið er tíminn...

...þegar kvenfólk springur út :)

Þar sem þetta blessaða sumar er greinilega komið þá byrjaði sumarátakið mitt mikla stundvíslega kl. 8 í morgun, nú verður nammigrísinn að fara í frí og koma bara í heimsókn á laugardögum. Eldaði mér kjúkling og grænmeti í ofninum svo byrjunin lofar góðu ;)

Ætlaði að fara að búa til umsókn í háskólann sem er nú kannski ekkert flókið nema ein lítil eyða sem þarf víst að fylla inn í svo maður geti byrjað í skólanum og það er hvað í ósköpunum maður á nú að læra..
Áður virtist ég vera alveg viss um hvað mig langaði að gera en núna stend ég algjörlega á gati, það endar örugglega með því að ég fari bara í eitthvað. Reyndar liggur mér akkúrat ekkert á og er ekkert að stressa mig á þessu.

Það er ágætt að eiga afmæli í desember því nú nota ég bara þá afsökun að ég sé enn svo ung enda bara 19 ára gömul ;)
Eru einhverjar uppástungur ?

Auk þess þá finn ég ekki stúdentsprófið mitt, er búin að gera dauðaleit út um alla íbúð og hvergi finnst það.. Á nú ekki það stóra holu að það ætti að geta bara gufað upp..

Vona að ég hafi ekki ryksugað það í einhverjum þrifnaðarlátunum :haha:

***

Sumarið stefnir bara í að vera skemmtilegt, fékk launahækkun í síðustu viku þannig við skötuhjú ákváðum að gera eitthvað gott úr því og erum komin með ferlega góða uppástungu að fríi..
Vá hlakka ég til! Erum meira að segja búin að finna ferðafélaga þannig þetta er allt að smella ;)

Ætla að enda þetta á lagi sem ég er búin að hlusta á oft í kvöld, textinn er ótrúlega góður, ég held að maður hafi það aðeins of gott miðað við svo marga aðra í heiminum.

http://www.youtube.com/watch?v=6DEh0eSpNvY

Aðeins of flott hjá henni Pink!

-Magga-

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 12:16:36 / magga

Finally

***

Núna kemur mín mánaðarlega færsla - þetta gengur ekki he he :)

Kannski ég byrji á því að senda síðbúna afmæliskveðju til Daða en hann varð 22 ára fyrir viku síðan eða 14. mai.
Auðvitað bakaði ég köku og gerði heitan rétt handa honum, maður verður að dekra aðeins við hann á afmælisdaginn :)

*Til hamingju með það prinsinn minn :*

 

***

Eurovision helgina var ég síðan í Hveragerði meðan kallinn var í frekar saurugri veiðiferð með strákunum. Það var bara gaman að hitta stelpurnar :)

Á föstudeginum hitti ég systurnar Hildi og Auði, fórum út að borða á Menam sem var bara kósý. Kíktum á Kaffi krús og síðan á pakkhúsið. Síðan stakk ég þær af og kíkti á ball sem ég hefði kannski betur getað sleppt, fór heim með sætaferðum og leið eins og ég væri að endurupplifa djammsumarið okkar Fríðu Möggu í denn ;)

Laugardagurinn var síðan tekinn snemma en við mæðgurnar fórum allar í plokkun og litun á Selfossi, fórum á Krúsina og svo splæsti mamma í dress á okkur :)
...Reyndar varð ég að kaupa annan kjól þar sem ég bara gat ekki ákveðið mig!

Fórum síðan heim í grill og svo tók við Eurovision/kosninga "partý" hjá Gunnu en við vorum bara tvær að spjalla þar til Helga Þórey kom til okkar.. Kíktum á pakkhúsið og kosningavöku sem var bara fínt..

 

Skemmtileg helgi sem endaði á sveittum hamborgara á American Style - klikkar seint ;)

***

Um síðustu helgi var litla barnið í fjölskyldunni fermt, barnið orðið að dömu!

*Barnið/daman með vinkonu sinni - til hamingju gæskan!

 

Á föstudaginn næsta er síðan planað að fara austur og skála aðeins fyrir stelpunum sem eru að útskrifast - verður maður ekki að gera það ;)

En jæja - ryksugan kallar á mig....

-Magga-


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 21:09:43 / magga

Hvernig væri ég?

***

-Magga-

-Baby-

-Child-

-Older Adult-

-Apeman-

 

-Afro-Caribean-

-Manga Cartoon-

-Drunk-

 -Botticelli-

Hahaha þetta er bara fyndið :haha::haha:

Hvað fer mér svo best?


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 21:07:30 / magga

Sumarið að koma?

 

G*L*E*Ð*I*L*E*G*T * S*U*M*A*R

...Þó það sé nú kannski ekki alveg komið :)

Þó er sumarandinn alveg að koma yfir mig þrátt fyrir að vera ekki með neitt planað þetta sumarið sem er ekki nógu gott..

Langar mest í heimi til sólarlanda en býst nú fastlega við því að það verði ekki í sumar :frown:
Ég ætla sko að bæta það upp einhverntíman seinna, það er á hreinu!

Fór í Smáralindina í dag með Lilju, þurfti að fara að skipta einhverju fyrir mömmu og ég heyrði fötin kalla á mig um að kaupa þau, alltaf þegar ég fer bara til þess að skoða langar mig helst til þess að kaupa allt upp - en þegar ég ætla nú að fara til þess að kaupa, finn ég ekkert!

Æj stundum er erfitt að vera ég hehehe...

Ég get nú verið glöð yfir einu - sem er að þurfa ekki að vera í einhverju prófastressi þetta vorið. Þó svo ég sakni þess svo innilega ekki að þurfa að taka próf, þá sakna ég pínu góðu tilfinningunni sem maður fær þegar maður labbar út úr seinasta prófinu og kominn í sumarfrí.. Það er svo notalegt eitthvað :)

Stelpurnar að fara að dimmitera á morgun, kannski sé ég þær á Selfossi annað kvöld.
Vá hvað ég væri til í að slást í hópinn og skemmta mér, held að dimmiteringin hafi verið langskemmtilegasta djamm sem ég hef upplifað.. 

 
 

Bleikur fíll - gerist ekki betra :haha:

 Ætla að horfa á Desperate housewives..

-Magga- 

P.S. Vil endilega óska Fanney og Maté til hamingju með litlu prinsessuna, hún er bara sæt :)  


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 09:11:48 / magga

Páskarnir..

***

Þá er maður kominn aftur í vinnuna eftir yndigott páskafrí!

Fórum á miðvikudagskvöldið heim til Sigrúnar og Sindra og borðuðum með þeim og Heiðari og Lilju. Borðuðum góðan mat og töluðum svo mikið að allt í einu var klukkan að verða fimm og allir strákarnir sofnaðir í sófanum hehe... Þeir sem ætluðu svo mikið niðrí bæ, enduðu bara kúrandi ofan í hvor öðrum, bara fyndið!
Allavega, ótrúlega skemmtilegt kvöld og við verðum endilega að hafa svona oftar :)

Letin byrjaði síðan á fimmtudaginn, gerðum okkur heimakomin á Langholtsveginum og vorum þar allan daginn. Lilja litaði á mér hárið og gerði það svona líka listavel, held ég hafi sparað mér 10 þúsund kall þarna - ekki slæmt það!
Á föstudeginum fórum við í matarboð á Selfossi og horfðum á xfactor með fjölskyldunni hans Daða.. Kíktum síðan í sumarbústað til famelíunnar í Grímsnesið þar sem við skötuhjúin brunuðum út um alla sveit á fjórhjóli! Síðan eftir góða sallíbunu var páskamaturinn snæddur en svo var haldið heim í heiðarbólið okkar! 

Súkkulaðiátið var sko í hámarki þessa páskana, var held ég verri en ég var nokkurntíman sem krakki.. Vissi ekki að þetta færi versnandi með árunum 8|

...Þannig nú er það bara átak sem bíður mín...

-Magga-


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 16:18:29 / magga

Laugardagur

***
Í dag áttum við óvænt frí sem er ekkert nema þægilegt..
Sváfum til hádegis og fórum í ræktina og tókum aðeins á því :) 

Fór aðeins út í búð áðan að kaupa smá laugardagsnammi og þegar ég kom heim var heldur þungt yfir kauða sem var að horfa á Manchester leik þar sem ManUtd var undir 1-0.. Ég ákvað að setjast hjá honum sem ég held að hafi verið happa - það komu heil fjögur mörk í röð.

Til allrar hamingju, því annars hefði maður mátt eiga von á smá bræðiskasti - ég á örugglega aldrei eftir að kynnast svona mikilli innlifun yfir fótboltaleik!

Ég held að ég verði bara róleg í kvöld, á stelpumynd hérna heima sem ég er að hugsa um að horfa á í kvöld og hafa kósý.
Á morgun ætlum við að bruna austur að skúra og ég ætla í bónusferð í boði pabba ;) Stefnan er síðan tekin á kaffihúsahitting með Stellu um kvöldið, voða gaman! 

Á mánudaginn er það stelpukvöld hérna í Rauðalæknum með tilheyrandi masi og áti og svo á miðvikudaginn er það "Reykjavíkurparahittingur" með tilheyrandi masi, áti og kannski eitlitlu sötri ;)

En jæja, hef það ekki lengra í bili.. 

-Magga- 


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 20:56:48 / magga

Fimmtudagsfærsla..

***

Kveldið...

Er búin að vera heima í dag frá vinnu út af einhverju magaveseni á mér, er búin að vera með svo mikinn magakrampa að ég veit ekki mitt rjúkandi ráð - er þó öll að koma til sem betur fer :)

Fékk símtal áðan frá mömmu þar sem pabbi var búinn að segja henni frá þessum blessuðu veikindum mínum sem er svosem ekki frásögum færandi..

Nema hvað að nánast það fyrsta sem hún nefndi við mig hvort ég væri nú nokkuð bomm.
Ég fullvissaði hana nú um að það væri nú engan veginn þannig..

...enda kannski ekki alveg tilbúin í þann pakka strax...

Síðan töluðum við mamma saman um hitt og þetta sem heldur er ekki frásögum færandi fyrr en ég byrjaði að kveðja hana..

Því þá sagði mamma: Anna sá barn í bollanum mínum í dag!
-Einhver hafði semsagt verið að spá í kaffibolla hjá henni..

Greinilega eitthvað stressuð - en svona er þetta, stelpur mega aldrei kveinka sér eitthvað þá fá þær þessa spurningu!

-Mamma samt soldið krútt í sér-

En svona til að fyrirbyggja allan miskilning, er ég ekki preggó he he :)

Fengum einn lítinn og sætan kjána í pössun um seinustu helgi..

-og það er mjög góð getnaðarvörn ;)

 

*Kjáninn litli*

Annars er ekki mikið að frétta af mér, sit hérna við sjónvarpið, búin að kveikja á milljón kertum með popp og pepsi max að horfa á Desperate þátt sem ég er reyndar löngu búin að sjá

-stundum er aðeins of leiðinlegt að vera óþolinmóður!

-Magga-

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 08:45:09 / magga

Sweet..

**** 

Kannski tími til kominn að blogga smá...

Er nýkomin í vinnuna og bara nokkuð rólegt hjá mér, eitthvað annað en undanfarna daga þannig það er bara ágætt stundum :) Það er nú voða sweet að vera svona að vinna þrátt fyrir að ég sakni þess svolítið núna að vera ekki í skóla og fá langt páskafrí!
Páskarnir hjá mér verða eiginlega bara eins og ein löng helgi.
En ég er nú kannski ekki beint í stöðu til þess að kvarta ;)

Veit reyndar ekki hvað ég ætla að gera um páskana annað en að borða góðan mat og páskaegg, væri nú ansi mikið til í að hoppa eitt ár aftur í tímann og fara að sóla mig og versla í Flórída - það væri nú ljúft!

Síðustu helgi ætluðum ég, Álfhildur og Hlín að sjá þennan sjarmör:

En það heppnaðist því miður ekki...

Ég var sko tilbúin með myndavélina á hverju horni og tók nettan paparazza á þetta þegar við sáum limmu stoppa hjá okkur..

-En það voru bara einhverjir plebbar sem stigu út - ekki Jude sjálfur :/

-Magga-

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 14:30:28 / magga

Laugadagur til lukku

***

Mmm... elska laugardaga þegar ég er í fríi,
kaupi mér alltaf nammi og hef það gott - bregst ekki :)

Fór á Vinnudjamm í gær, fórum í keilu og svo út að borða. Í keilunni vorum við skipt í lið og það var búningakeppni og hvaðeina! Mitt lið vann búningakeppnina en tölum ekkert um keiluúrslitin sjálf :haha:

Eftir keiluna fórum við síðan á Tapas, vá er góður maturinn þar, fengum held ég svona 10 rétta máltíð með fordrykk, hvítu og svo Mohito - alveg agalega gott sko :)  

..Síðan er aftur vinnudjamm næsta föstudag, hópefling - alltaf brjálað að gera í vinnunni hjá mér..

 ****

Í dag á líka ein fögur snót tvítugsafmæli!

Það er hún Þóra, til lykke elskan!!

Ég vildi nú alveg geta kysst hana til hamingju, en hún er bara of langt frá mér til þess!

 

*Klöppum fyrir því ;)*

 -Magga-

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 19:17:30 / magga

Mig langar í...

***

Mig langar svo í litla kisu..

..sem ég gæti knúsað út í eitt þegar ég kem heim úr vinnunni..

 

Daði? :haha:;)

-Magga-


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9